Grunngildi
Viðhorfin sem knýja áfram nálgun mína í hverju verkefni.
Færni
Þverfagleg nálgun til að leysa vandamál og þróa vörur.
Vöruhönnun
Breyti flóknum vandamálum í vörur sem meika sens. Ég horfi á heildarmyndina, þar með talið notendur, viðskiptamarkmið og allt þar á milli.
UX Hönnun
Hanna upplifanir sem fólk þarf ekki að hugsa of mikið út í. Ferlið mitt byrjar á rannsóknum, forvitni og því að spyrja "af hverju virkar þetta svona?"
Hönnunarrannsóknir
Skilja fólk áður en hannað er fyrir það. Með viðtölum, athugunum og forvitni leita ég að raunverulegum vandamálum sem fela sig á bak við þau augljósu.
UI Hönnun
Hrein uppsetning, skýrt letur og viðmót sem hegðar sér vel. Gott viðmót ætti ekki að öskra, það ætti hljóðlega að gera allt auðveldara.
Hreyfihönnun
Hreyfing er tungumál. Með tímasetningu, takti og sjónrænni frásögn nota ég hreyfingu til að leiðbeina, útskýra og stundum gleðja. Hver rammi ætti að þjóna tilgangi.
Skapandi Tækni
Mér finnst gaman að skilja hvernig hlutirnir virka raunverulega á vefnum. Stundum þýðir það að búa til frumgerðir. Stundum þýðir það að rífast við CSS.
Grafísk Hönnun
Bakgrunnur minn í grafískri hönnun kenndi mér grunnatriðin: stigveldi, jafnvægi og að vita hvenær á að hætta að bæta hlutum við.
Valin Verkefni
Dæmisögur sem sýna vinnuferlið mitt í UX/UI hönnun, rannsóknum og frumgerðum.
Frá núningi til flæðis: Endurhönnun á Locatify Creator CMS
UX/UI DesignAðal UX/UI hönnuður. Stýrði ferlinu frá rannsóknum til lokaútgáfu til að búa til einfaldara og notendavænna kerfi.
Betra viðmót og hönnun fyrir fjárfestingarapp í eðalvínum
UX/UI DesignÁ tíu vikum framkvæmdi teymið okkar notendarannsóknir og endurhannaði appið til að bæta notagildi og skýrleika fyrir vínfjárfesta.
Einföldun á flækjustigi fyrir stórfellda reikningsstjórnun hjá Ericsson
UX/UI DesignÁ fjórum vikum rannsakaði teymið okkar og smíðaði frumgerð af mælaborði til að einfalda yfirsýn yfir flókin skipulagsform.
Gera heilsubókanir mannlegri og meira grípandi
UX/UI DesignÁ fjórum vikum endurhönnuðum við innskráningu og grunnflæði Trime með rannsóknum til að gera bókanir persónulegri.
Hönnunarkerfi: Sameiginlegt tungumál
HönnunarinnviðirUppbygging á stækkanlegu hönnunarkerfi (Design System) fyrir samræmi á milli verkefna án hnökra.
Hreyfihönnun: Útsendingar og viðburðir
HreyfihönnunHönnun á hreyfingu sem fólk þarf ekki að hugsa um - en finnur samt fyrir. Allt frá sjónvarpsgrafík í beinni til menningarviðburða.